Persónuverndarstefna
Útgáfa 0.2 · Síðast uppfært 16. október 2026
Drög. Þetta skjal er í vinnslu, hefur ekki verið yfirfarið af lögmanni og hefur ekki tekið gildi. Atriði merkt með rauðu vantar enn.
1. Ábyrgðaraðili
Þessi stefna lýsir því hvernig Tutor safnar, notar og varðveitir persónuupplýsingar. Ábyrgðaraðili vinnslunnar í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerðar (ESB) 2016/679 („GDPR“) er:
- Nafn: [Nafn ábyrgðaraðila – SKYLDA FYRIR OPNUN]
- Heimilisfang: [Heimilisfang ábyrgðaraðila]
- Netfang: [Netfang Tutor – SKYLDA FYRIR OPNUN]
Tutor hefur ekki skipað persónuverndarfulltrúa. Spurningum um persónuvernd má beina á netfangið hér að ofan.
2. Hvaða upplýsingum söfnum við?
| Flokkur | Upplýsingar |
|---|---|
| Aðgangur | Fullt nafn, netfang, símanúmer, lykilorð (geymt sem tætigildi, e. hash, svo við sjáum það aldrei), hvenær aðgangur var stofnaður og netfang staðfest, og stilling um tölvupóst. Símanúmer eru ekki staðfest. |
| Prófílmynd | Valfrjáls mynd. Stjórnandi fer yfir hana áður en aðrir sjá hana. |
| Kennaraprófíll | Nám, lýsing, verð á klukkustund, kennsluform, námskeið, laus tími og mynd. Einnig innsendar útgáfur, staða yfirferðar, ástæða höfnunar og hvenær prófíll var samþykktur. |
| Breytingasaga | Hver breyting á nafni, símanúmeri, stillingu um tölvupóst, prófílmynd og kennaraprófíl er skráð með tíma. Fyrir texta er aðeins mismunurinn geymdur, en út frá honum má endurgera fyrri útgáfur. Breytingar á umsögnum eru skráðar á sama hátt. |
| Skilaboð og tilboð | Efni skilaboða, hverjir eiga í samtali, tími, hvort skilaboð hafi verið lesin og hvort kennari hafi hafnað fyrirspurn. Fyrir tilboð: lýsing, verð, tímalengd, kennsluform, upphafstími, greiðslutilhögun, aðrir skilmálar, staða og hvenær var svarað. |
| Tilkynningar í tölvupósti | Hvaða tilkynning var send, til hvers, um hvaða samtal, staða sendingar og tími. Efni skilaboða og tilboða er aldrei sett í tölvupóst. |
| Umsagnir | Stjörnur, texti, höfundur, kennari og dagsetningar. Tilkynningar um umsagnir (hver tilkynnti, ástæða, niðurstaða) og skráning þeirra sem sviptir hafa verið rétti til að skrifa umsagnir. |
| Ábendingar | Flokkur, lýsing, staða og tími. Ef þú ert innskráð(ur) tengist ábendingin aðgangi þínum og netfangi hans. Annars valfrjálst netfang sem þú gefur upp. Valfrjáls skjámynd (aðeins frá innskráðum). |
| Tæknilegar upplýsingar | Innskráningarkaka (sjá vafrakökur). Þjónustuaðilar okkar skrá tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölur og tíma beiðna, í atvikaskrár sínar. |
Við biðjum ekki um fæðingardag, kennitölu eða greiðsluupplýsingar, fylgjumst ekki með staðsetningu og notum hvorki greiningar- né auglýsingakökur. Myndir eru endurunnar á netþjóni áður en þær eru vistaðar og þá eru falin lýsigögn, svo sem GPS-staðsetning, fjarlægð.
3. Tilgangur og lagagrundvöllur
| Tilgangur | Lagagrundvöllur (GDPR) |
|---|---|
| Að stofna og reka aðgang, birta kennaraprófíla og gera notendum kleift að senda skilaboð, tilboð og umsagnir. | Efndir samnings, b-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Yfirferð prófíla og mynda, stjórnun efnis, meðferð tilkynninga, takmörk á fjölda aðgerða og varnir gegn svikum, misnotkun og öryggisbrestum. | Lögmætir hagsmunir Tutor og notenda af öruggum og traustum vettvangi, f-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Breytingasaga: að upplýsa misnotkun, leysa úr ágreiningi og endurheimta gögn. | Lögmætir hagsmunir, f-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Varðveisla tilboða, samkomulags og samskipta eftir lokun aðgangs. | Lögmætir hagsmunir Tutor og hins aðilans af því að geta sýnt fram á hvað var samið um og stofnað, haft uppi eða varið réttarkröfur, f-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Rekstrargreining, svo sem á svartíma kennara, eftirspurn eftir námskeiðum, samþykktum tilboðum og virkni vettvangsins, til að bæta þjónustuna. Niðurstöður eru teknar saman þannig að þær eigi ekki við einstaka notendur. | Lögmætir hagsmunir, f-liður 1. mgr. 6. gr. Þú getur andmælt, sjá 7. kafla. |
| Að svara ábendingum og bæta vefinn. | Lögmætir hagsmunir, f-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Tölvupóstur vegna aðgangs, svo sem staðfesting netfangs. | Efndir samnings, b-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Tilkynningar í tölvupósti um ný skilaboð, tilboð, svör við tilboðum og höfnun fyrirspurnar, og áminning til kennara þegar fyrirspurn hefur ekki verið svarað í fjóra daga. Hægt er að slökkva á tilkynningunum á prófílsíðunni. | Efndir samnings, b-liður 1. mgr. 6. gr. |
| Að verða við lagaskyldu, svo sem beiðnum lögreglu eða dómstóla sem byggja á lögum. | Lagaskylda, c-liður 1. mgr. 6. gr. |
Við byggjum ekki ákvarðanir sem hafa réttaráhrif fyrir þig eingöngu á sjálfvirkri vinnslu.
4. Hverjir sjá upplýsingarnar?
- Allir sem heimsækja vefinn sjá samþykkta kennaraprófíla: fullt nafn, mynd, nám, lýsingu, verð, kennsluform, námskeið, lausan tíma, meðaleinkunn og umsagnir. Með umsögn birtist fornafn höfundar og dagsetning.
- Viðmælendur þínir í samtali sjá nafn þitt og samþykkta prófílmynd, en ekki netfang eða símanúmer.
- Stjórnendur Tutor sjá það sem þarf til að fara yfir prófíla, myndir, tilkynningar og ábendingar, þar á meðal símanúmer kennara sem sækja um birtingu.
- Rekstraraðili Tutor hefur tæknilegan aðgang að gagnagrunninum. Hann skoðar skilaboð ekki að jafnaði, heldur aðeins þegar það er nauðsynlegt vegna tilkynningar, öryggis, gruns um misnotkun, beiðni þinnar eða lagaskyldu.
Vinnsluaðilar. Við notum eftirfarandi þjónustuaðila sem vinna upplýsingar eingöngu fyrir okkar hönd:
- Supabase (Supabase Inc., Bandaríkjunum): gagnagrunnur, innskráning, myndageymsla og tölvupóstur vegna aðgangs. Gögnin eru geymd á: [Staðsetning gagna – staðfesta].
- Resend (Resend, Inc., Bandaríkjunum): sending tilkynninga í tölvupósti. Resend fær netfang viðtakanda, nafn sendanda og texta tilkynningarinnar, en aldrei efni skilaboða.
- Hýsing vefsins: [Hýsingaraðili – óákveðinn].
Við seljum ekki persónuupplýsingar. Upplýsingar kunna að verða afhentar yfirvöldum þegar lög krefjast þess, eða nýjum rekstraraðila ef rekstur Tutor er framseldur, og þá gildir þessi stefna áfram.
5. Flutningur út fyrir EES
Supabase Inc. og Resend, Inc. eru bandarísk félög. Ef persónuupplýsingar eru fluttar eða aðgengilegar utan Evrópska efnahagssvæðisins byggir flutningurinn á viðeigandi verndarráðstöfunum samkvæmt V. kafla GDPR, svo sem stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB: [Grundvöllur flutnings – staðfesta í vinnslusamningum Supabase og Resend].
6. Hve lengi geymum við upplýsingar?
Við geymum persónuupplýsingar ekki lengur en þörf er á í þeim tilgangi sem þeim var safnað í. Upplýsingar um virkan aðgang eru geymdar meðan aðgangurinn er til. Ef þú óskar eftir að aðgangi þínum verði eytt gerum við það án ástæðulausrar tafar og innan mánaðar, með þeim undantekningum sem hér koma fram.
| Upplýsingar | Eftir lokun aðgangs |
|---|---|
| Aðgangur, prófílmynd, kennaraprófíll og innsendingar | Eytt. Kennaraprófíll hættir strax að birtast. |
| Myndir | Eytt. Á meðan aðgangur er virkur geymum við að hámarki 5 myndir af hvorri tegund og eyðum sjálfkrafa eldri myndum sem ekki eru í notkun. |
| Breytingasaga | Eytt. |
| Skrá yfir tilkynningar í tölvupósti | Eytt. |
| Skilaboð | Skilaboð sem þú sendir eru áfram sýnileg viðmælanda þínum, en nafni þínu er skipt út. Þeim er eytt [4 árum – tillaga, bíður ákvörðunar] eftir síðustu skilaboð í samtalinu. |
| Tilboð og samkomulag | Varðveitt í [4 ár – tillaga, bíður ákvörðunar] frá því tilboði var svarað, sem samsvarar almennum fyrningarfresti krafna (3. gr. laga nr. 150/2007), og síðan eytt. |
| Umsagnir sem þú skrifaðir | Eytt. |
| Fjarlægðar umsagnir, tilkynningar og ákvarðanir stjórnenda | Varðveitt í [1 ár – tillaga, bíður ákvörðunar] frá ákvörðun, til að geta svarað fyrirspurnum og brugðist við endurteknum brotum. |
| Ábendingar og skjámyndir | Eytt [2 árum – tillaga, bíður ákvörðunar] eftir að þær berast. Ábendingar frá innskráðum notendum eru aftengdar aðgangi við lokun hans. |
| Atvikaskrár og afrit hjá þjónustuaðilum | Samkvæmt skilmálum þjónustuaðila: [Tímalengd – staðfesta hjá Supabase, Resend og hýsingaraðila]. |
Undantekningar. Ef upplýsingar eru nauðsynlegar vegna yfirstandandi ágreinings, rannsóknar á svikum eða misnotkun, eða lagaskyldu, geymum við þær þar til málinu er lokið.
Ópersónugreinanleg tölfræði. Við megum varðveita og nota tölfræði sem hefur verið gerð ópersónugreinanleg, þannig að hvorki er hægt að rekja hana til einstaklinga né tengja hana þeim aftur, án tímatakmarka. Slík tölfræði telst ekki til persónuupplýsinga.
7. Réttindi þín
Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á:
- að fá aðgang að upplýsingum um þig og afrit af þeim;
- að fá rangar upplýsingar leiðréttar;
- að fá upplýsingum eytt, nema varðveisla sé nauðsynleg, til dæmis vegna lagaskyldu eða réttarkrafna (sjá 6. kafla);
- að vinnsla verði takmörkuð í ákveðnum tilvikum;
- að fá upplýsingar sem þú lést okkur í té á tölvutæku formi (flutningsréttur);
- að andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, þar á meðal rekstrargreiningu. Við hættum þá vinnslunni nema við getum sýnt fram á mikilvægari lögmætar ástæður fyrir henni.
Sendu beiðni á [Netfang Tutor – SKYLDA FYRIR OPNUN]. Við svörum innan mánaðar og gætum þurft að staðfesta hver þú ert. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
8. Öryggi
- Gagnagrunnurinn notar aðgangsreglur (Row Level Security) þannig að hver notandi getur aðeins lesið og breytt því sem honum er heimilt, til dæmis eigin upplýsingum og eigin samtölum.
- Samskipti við vefinn eru dulkóðuð (HTTPS) og lykilorð eru geymd sem tætigildi hjá Supabase, ekki í læsilegu formi.
- Kennaramyndir og prófílmyndir eru geymdar á vefslóðum sem ekki er hægt að giska á, en hver sem fær slóðina getur skoðað myndina. Skjámyndir með ábendingum eru í lokaðri geymslu og aðeins stjórnendur geta opnað þær, með hlekk sem gildir í eina klukkustund.
- Takmörk á fjölda aðgerða draga úr ruslpósti og misnotkun.
Engin kerfi eru fullkomlega örugg. Ef öryggisbrestur verður sem ógnar réttindum þínum tilkynnum við það Persónuvernd og þér eftir því sem lög kveða á um.
9. Aldur
Tutor er eingöngu fyrir 18 ára og eldri. Við vinnum ekki vísvitandi upplýsingar um yngri einstaklinga og eyðum þeim ef við verðum þess vör að slíkur aðgangur hafi verið stofnaður.
10. Breytingar á stefnunni
Við uppfærum þessa stefnu ef vinnsla breytist. Verulegar breytingar tilkynnum við með tölvupósti eða á vefnum áður en þær taka gildi. Útgáfunúmer og dagsetning efst á síðunni sýna hvenær stefnunni var síðast breytt.