Vafrakökur
Útgáfa 0.1 · Síðast uppfært 16. október 2026
Drög. Þetta skjal er í vinnslu, hefur ekki verið yfirfarið af lögmanni og hefur ekki tekið gildi. Atriði merkt með rauðu vantar enn.
1. Í stuttu máli
Tutor notar eingöngu nauðsynlegar vafrakökur, þ.e. kökur sem þarf til að þú getir skráð þig inn og verið innskráð(ur). Við notum hvorki greiningarkökur, auglýsingakökur né vafrakökur frá þriðju aðilum, og vefurinn sækir ekki leturgerðir eða önnur gögn til Google eða annarra sem gætu fylgst með heimsóknum.
2. Vafrakökur sem við notum
| Heiti | Tilgangur | Gildistími |
|---|---|---|
sb-…-auth-token | Heldur þér innskráðum notanda. Inniheldur innskráningarlykil frá Supabase. Ef kakan er stór er henni skipt í hluta sem enda á .0, .1 o.s.frv. Hún er aðeins sett ef þú skráir þig inn. | Allt að 400 dagar, en endurnýjuð meðan þú notar vefinn. Eytt þegar þú skráir þig út. |
sb-…-auth-token-code-verifier, sb-…-auth-token-flow-…-code-verifier og sb-…-auth-token-flows-code-verifier | Tímabundnar öryggiskökur sem settar eru við nýskráningu, svo hægt sé að ljúka staðfestingu netfangs á öruggan hátt (PKCE). | Fjarlægðar þegar staðfestingu lýkur eða þegar þú skráir þig út. Annars renna þær út eftir allt að 400 daga. |
Í stað fyrsta „…“ í heitunum kemur auðkenni Supabase-verkefnis Tutor og í stað þess seinna handahófskennt auðkenni. Kökurnar eru eingöngu sendar á vef Tutor (fyrstu aðila kökur).
3. Af hverju þarf ekki samþykki?
Samkvæmt 2. mgr. 88. gr. laga nr. 70/2022 um fjarskipti er heimilt að geyma upplýsingar í tæki notanda án samþykkis þegar það er tæknilega nauðsynlegt í lögmætum tilgangi og með vitund notandans. Innskráningarkökurnar falla undir það og þessi síða er ætluð til að upplýsa þig um þær. Ef við tökum síðar upp vafrakökur sem ekki eru nauðsynlegar biðjum við fyrst um samþykki þitt.
4. Að stýra vafrakökum
Þú getur eytt eða lokað á vafrakökur í stillingum vafrans þíns. Ef þú lokar á kökur Tutor geturðu skoðað vefinn en ekki skráð þig inn.
Nánar um meðferð persónuupplýsinga í persónuverndarstefnu.